Almenna bílaverkstæðið ehf var stofnað árið 1991 af Kristmundi Þórissyni og Ríkharði Kristinssyni. Það hefur frá upphafi verið til húsa í Skeifunni 5. Við stofnun fyrirtækisins var fjöldi bifvélavirkja tveir en í dag eru þeir sjö. Fyrst var fyrirtækið í 150 fm leiguhúsnæði en árið 1998 keypti fyrirtækið húsnæðið og stækkaði við sig og er í dag um 300 fm. Verkstæðið er búið sex bílalyftum og nýjustu bilanagreinum fyrir Hyundai og Renault. Einnig eru á staðnum bremsuprófari ásamt öðrum nauðsynlegum tækjum.
Almenna bílaverkstæðið hefur réttindi til endurskoðunar bifreiða.

Almenna bílaverkstæðið er sérhæft verkstæði fyrir Hyundai, Renault, BMW og Land Rover. Auk þess sinnir það flestum bílaviðgerðum og þjónustu.

Viðgerðir, sem Almenna bílaverkstæðið ehf getur ekki sinnt vegna tæknibúnaðar eða annarra annmarka vísum við frá okkur en getum leiðbeint við val á öðru verkstæði.